ÚTSALA
Hilla 150 cm / 53 cm
Hilla 150 cm x 23 cm
Junior gróðurhús – 3 stærðir
Junior T gróðurhús
Master Gróðurhús – 5 stærðir
Pumpa á þakglugga STORM
- Hámarks opnun u.þ.b 45 cm, háð festingu og þyngd
- Hámarks opnun við 30 ° C
- Byrjar að opna við 17-25 ° C
- Lyftir allt að 7 kg = passar fyrir þakglugga sem eru allt að 15 kg að þyngd
- Storm-módelið er mun sterkara en hefbundnar gróðurhúsapumpur. Því bjóðum við eingöngu upp á slíkar pumpur fyrir þakglugga.
Royal T gróðurhús
Sáðbakki 50cm
Sáðbakki 50 cm djúpur
Sáðbakki sem passar fullkomlega í Janssens gróðurhús. Mismunandi lengdir sem passa á glerbilin í húsunum. Dýpt bakkans er 50 cm. Frábær viðbót við gróðurhúsið sem auðeldar ræktun í húsunum. Hægt að stylla hæðina eftir þörfum hvers og eins til að gera vinnuna enn þægilegri fyrir ræktandann. Í sáðbakkana er hægt að sá og planta beint í jarðveg, auðveldt að umpotta úr sáðbakkanum beint í potta.Senior Gróðurhús – 4 stærðir
Urban gróðurhús
Algengar spurningar
Vörur á útsölu eru greiddar að fullu við pöntun. Reikningur er gefinn út eftir móttöku greiðslu. Um er að ræða sérpantaðar, sér innfluttar vörur. Afhending fer fram eftir tilgreindan afhendingarfrest eða á umsömdum degi sé þess óskað.
Sýningarsalurinn okkar er í Faxafeni 10, 108 Reykjavík. Hægt er að bóka tíma hjá okkur á [email protected] til að koma og hitta sölumann.
Öll okkar gróðurhús eru afhent ósamsett. Í nær öllum tilfellum er um að ræða eitt bretti með gleri og svo 2-3 kassa af ál listum og fylgihlutum. Stærðirnar eru alla jafnan svona:
- Gler bretti: B 80 cm, L 120 cm, H 220 cm
- Prófílakassi 1 – B 30 cm, H 20 cm, L (jafn löng og gróðurhúsið sem keypt er)
- Prófílakassi 2 – B 30 cm, H 20 cm, L 310 cm.
Í flestum tilfellum er best að fá gróðurhúsið sent með sendibíl þangað sem á að setja húsið upp. Gler brettið vegur alla jafnan frá 400-700 kg. og er ekki ætlaði í hýfingar. Ekki er mælt með því að hýfa glerbretti með krana nema á þar til gerðum palli. Ekki er æskilegt að “velta” glerkistu á hliðina til að flytja á kerru.
Við erum með vana uppsetningamenn sem taka að sér að setja gróðurhúsin okkar upp fyrir viðskiptavini. Verð er mismunandi eftir því um hvaða hús er að ræða og því best að leita til sölumanna, ekki hika við að hafa samband á [email protected]
Þó nokkuð margir viðskiptavinir hafa valið að sækja gróðurhús til okkar og nota til þess kerru. Í slíkum tilfellum mælum við með því að notast sé við kerrur sem meiga bera þyngdina á húsinu (sölumenn veita upplýsingar um þyngd á pöntuðum húsum). Best er að kerran henti til að hlaða á með lyftara og að hún sé nægilega löng til að lengstu pakkarnir passi á hana. Mikilvægt er að hafa í huga að gler brettið er allt að 2,2 m á hæð og þarf að flytast í standandi stöðu. Þá þarf að sjálfsögðu að tryggja að farmurinn sér vel festur niður áður en haldið er af stað.
Þegar valið er gler í gróðurhús er miðað við sömu reglur og um annað íbúðarhúsnæði. Eru reglurnar meðal annars settar til að varna glerskurðarslysum og tryggja öryggi fólks. Íslenskar sérreglur eru byggðar á sænskum sérreglum sem byggingarstofnunin Boverket í Karlskrona hefur sett fram um val glergerða og Glascentrum í Växjö hefur útfært. Þar segir meðal annars að:
- Allar gólfsíðar rúður skuli vera með öryggisgleri
- Allar rúður sem ná neðar en 60 cm frá jörðu skuli vera með öryggisgleri
- Í öllum hurðum skuli vera öryggisgler
Kostir við hert gler öryggisgeler eru ótvíræðir þegar kemur að styrk og gæðum enda er hert öryggisgler allt að 5x sterkara en hefðbundið flot gler. Þá brotnar flotgler í stórar skífur sem geta auðveldlega valdið glerskurðarslysum á meðan hert gler molnar í litlar gleragnir sem eru nær hættulausar.
BK Hönnun ehf selur því ekki gróðurhús með venjulegu flotgleri.