Helstu stærðir
Stálgrind er kalformuð C bita grind. Mál á grind (undir klæðningu) eru:
- Breidd 8 m (utan mál á grind)
- Lengd 15 m (utan mál á grind)
- Vegghæð 3,5 m (utan mál á grind)
- Þakhalli 22°
Efnisþykkt stálgrindar
- Súlur, bitar og sperrur 250 mm C prófíll
- Langbönd í þaki 250 mm C prófíll
- Langbönd í veggjum, glugga og hurðar rammar 250 mm C prófíll
Afhendingartími
Um er að ræða sér pantaða og sér framleidda vöru. Afhendingartími er breytilegur og fylgir framleiðslutíma hjá birgjum BK Hönnunar hverju sinni. Afhendingartími ræðst því af ytri þáttum, þ.m.t áætlunum skipafélaga, framleiðslutíma hjá birgjum og öðrum ytri þáttum.
Hönnunargögn og tæknivinna
- Útlistseikningar og grunnmynd eða svokölluð framleiðsluteikning er innifalin í verði.
- Breytingar frá stöðluðum teikningum eru unnar í tímavinnu og gjaldfærðar skv. tímaskráningu.
- Aukalega er gjaldfærð tímavinna fyrir gerð aðaluppdrátta, burðarvirkjauppdrátta, afstöðumyndar, teikningu af aðliggjandi mannvirkjum, teikningu af lóð, skráningartöflu og samskipti við byggingaryfirvöld.
- Gerð lagnateikninga er ekki innifalin í verði
- Brunahönnun ekki innifalin í verði
- Byggingarstýring, uppáskrift iðnmeistara ekki innifalin í verði.
Efni innifalið í verði
- Stálgrind ofan sökkuls. Festing við sökkul ekki innifalin.
- Klæðning útveggja (yleining stönsuð) innifalin ásamt skrúfum og pvc hettum. 5 stk á m² klæðningar.
- Klæðning þaks (yleining m. trapísu) innifalin ásamt skrúfum, söðulskinnum og pvc töppum. 5 stk á m².
- Frágangslistar (áfellur) innifalið:
- Frágangslistar (áfellur) á mæni & þakstafna.
- Frágangslistar (áfellur) á úthorn & sökkullisti úti.
- Frágangslistar (áfellur) við hurðir & bílskúrshurð.
- Þakrenna og niðurföll ekki innifalið.
Nánari upplýsingar