GRÓÐURHÚS - GARÐSKÁLAR
Vönduð Belgísk garðhús sem hafa reynst vel á Íslandi undanfarin ár. Mörg hundruð uppsett hús um allt land.
Urban gróðurhús
Junior gróðurhús – 3 stærðir
Senior Gróðurhús – 4 stærðir
Senior Gróðurhús – 4 stærðir
Master Gróðurhús – 5 stærðir
Arcadia plus vegghús
Junior T gróðurhús
Master Gróðurhús – 310×458 14,2 m² hús
- Tvöföld rennihurð (einföld í staðlaðri útgáfu) - að andvirði 83,500 kr.
- Lágur þröskuldur (30 mm) - að andvirði 27,900 kr.
- 3 stk storm pumpur á þakglugga - að andvirði 29,900 kr stk.
- 2500 w pallahitari með festingum sem passa í húsið - að andvirði 49,900 kr
- 6 stk styrkingarbitar - að andvirði 23,900 kr stk.
Sólstofa Arcadia 305 x 310 cm
Sólstofa Arcadia 230 x 236 cm
Auakahlutir
Corten stál kantur 16 cm
Sveigjanlegrar einingar úr corten stáli til að afmarka beð eða grasflatir. Þykkt er 1,5mm, lengd einingar er 100 cm og hægt að tengja einingar saman, heildar hæð með jarð festingu er 16 cm, þar af er nýtanleg hæð 8 cm ofan jarðar. Rið birtist á nokkrum mánuðum í venjulegum veður aðstæðum. Til að flýta fyrir riðmyndum er hægt að bleyta stálið með blöndu af sjávarsalti og heitu vatni.
Corten stál kantur 24 cm
Hilla 150 cm / 53 cm
Hilla 150 cm x 23 cm
Hitari Palma 2x 1000 w
Hitari Phoenix 2800 w
Hjólbörurampur
Algengar spurningar
Sýningarsalurinn okkar er í Faxafeni 10, 108 Reykjavík, 2.hæð. Hægt er að bóka tíma hjá okkur á [email protected] til að koma og hitta sölumann eða heyra í okkur í síma 571-3535. Erum með uppsett 15 m2 hús með öllum helstu fylgihlutum.
Þegar valið er gler í gróðurhús er miðað við sömu reglur og um annað íbúðarhúsnæði. Eru reglurnar meðal annars settar til að varna glerskurðarslysum og tryggja öryggi fólks. Íslenskar sérreglur eru byggðar á sænskum sérreglum sem byggingarstofnunin Boverket í Karlskrona hefur sett fram um val glergerða og Glascentrum í Växjö hefur útfært. Þar segir meðal annars að:
- Allar gólfsíðar rúður skuli vera með öryggisgleri
- Allar rúður sem ná neðar en 60 cm frá jörðu skuli vera með öryggisgleri
- Í öllum hurðum skuli vera öryggisgler
Kostir við hert gler öryggisgeler eru ótvíræðir þegar kemur að styrk og gæðum enda er hert öryggisgler allt að 5x sterkara en hefðbundið flot gler. Þá brotnar flotgler í stórar skífur sem geta auðveldlega valdið glerskurðarslysum á meðan hert gler molnar í litlar gleragnir sem eru nær hættulausar.
BK Hönnun ehf selur eingöngu hert öryggsigler með glerskálunum okkar, en ekki venjulegt flotgler.
Við bjóðum upp á stál styrktarbita til að styrkja ál grindina í okkar gróðurhúsum. Bitarnir eru úr stáli og eru settir efst í samskeyti á milli veggs og þaks, og undir mæni.
Við erum með skrá yfir vana uppsetningamenn sem taka að sér að setja gróðurhúsin okkar upp fyrir viðskiptavini. Verð er mismunandi eftir því um hvaða hús er að ræða og hvaða vinna er innifalin.
Öll okkar gróðurhús eru afhent ósamsett. Í nær öllum tilfellum er um að ræða eitt bretti með gleri og svo 2-3 kassa af ál listum og fylgihlutum. Stærðirnar eru alla jafnan svona:
- Gler bretti: B 80 cm, L 120 cm, H 220 cm
- Prófílakassi 1 – B 30 cm, H 20 cm, L (jafn löng og gróðurhúsið sem keypt er)
- Prófílakassi 2 – B 30 cm, H 20 cm, L 310 cm.
Í flestum tilfellum er best að fá gróðurhúsið sent með sendibíl með lyftu þangað sem á að setja húsið upp. Gler brettið vegur alla jafnan frá 500-800 kg. og er ekki ætlaði í hýfingar. Ekki er mælt með því að hýfa glerbretti með krana nema á þar til gerðum palli. Ekki er æskilegt að “velta” glerkistu á hliðina til að flytja á kerru.
Vöruafhending er af vörulager okkar á Dofrahellu 9 í Hafnarfirði.
Þó nokkuð margir viðskiptavinir hafa valið að sækja gróðurhús til okkar og nota til þess kerru. Í slíkum tilfellum mælum við með því að notast sé við kerrur sem meiga bera þyngdina á húsinu (sölumenn veita upplýsingar um þyngd á pöntuðum húsum). Best er að kerran henti til að hlaða á með lyftara og að hún sé nægilega löng til að lengstu pakkarnir passi á hana. Mikilvægt er að hafa í huga að gler brettið er allt að 2,2 m á hæð og þarf að flytast í standandi stöðu. Þá þarf að sjálfsögðu að tryggja að farmurinn sér vel festur niður áður en haldið er af stað.
Við erum með hús uppsett um allt land. Vesturland, Vestfirðir, Norðurland, Austurland, Suðurland, Verstmannaeyjar, Suðurnes og að sjálfsögðu um allt höfuðborgarsvæðið. Frá árinu 2018 höfum við selt vönduðu húsin frá Janssens.
Við eigum alla jafna allt til í húsin ef upp kemur óhapp. Hvort sem það brotni gler, bæta eigi við hurð eða glugga eða bara að setja upp hillur.
Aukahluti (hillur, bakka og vinnuborð) eigum við alla jafna í flestum stærðum í svörtum lit.
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun gefur út leiðbeiningar við byggingarreglugerð. Við bendum okkar viðskiptavinum góðfúslega á gildandi reglur má finna hér.
Bendum þar sérstaklega á eftirfarandi kafla:
- 1.3 – Flokkun mannvirkja
- 2.3 – Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir
- 2.4 – Byggingarleyfið
- 2.7 – Ábyrgð eiganda mannvirkis
Afhendingartími á húsum úr “Action model” línunni er alla jafna stuttur, eða 2-4 vikur á vor og sumartíma. Sérsmíðuð hús úr “Custom model” línunni eru með lengri afhendingartíma. Sölumenn veita nánari upplýsingar á [email protected] eða í síma 571-3535.
Það eru ýmsar aðferðir við að grunda gróðurhúsin okkar. Algengast er að húsin séu fest niður á steyptar eða hlaðnar undirstöður og gólf sé með útiflísum eða hellum. Einnig eru húsin stundum sett á sólpalla en þá þarf að passa að loka fyrir blástur undan gólfinu. Í sumum tilfellum eru hlaðnir veggir undir húsin og þau sett á 20-40-60 cm háan sökkul vegg. Í sumum tilfellum eru steyptir sökklar og plata, allt fer þetta eftir óskum eiganda um endanlegt útlit og hvernig upplifun verið er að sækjast eftir. Sölumenn veita ráðgjöf með val á undirstöðum sé þess óskað.
Gróðurhús frá Janssens AluSystem í Belgíu
BK Hönnun ehf. flytur inn afar vönduð gróðurhús og glerskála frá Belgíska fjölskyldufyrirtækinu Janssens Alusystem. Vöruúrvalið er mikið og gæðin óumdeild. Höfum selt og mörg hundruð hús á íslandi.