Junior gróðurhúsin eru lítil og nett gróðurhús sem eru einföld í uppsetningu. Húsin eru í svokölluðum “DIY ” (gerðu það sjálfur) flokki. Húsin eru lager vara hjá framleiðanda og eru því fáanleg með skömmum fyrirvara. Húsin koma með 4mm einföldu hertu gleri og fást annarsvegar í svörtum lit með innbrendu lakki og hinsvegar í natur ál, ljós gráum lit. Junior húsin eru með meiri þakhalla en flest önnur módel og henta því vel þar sem snjóalög eru mikil.
Arcadia Victorian gróðurhús eru gróðurhús sem koma upp að vegg. Húsin koma í 2 dýptum og 3 stöðluðum lengdum. Hægt er að lengja húsin með því að bæta við AV0E eða AV1E lenginum sem eru 73 cm aukalega. Stærðir eru frá 1,3 m² og upp í 7,2 m² án auka lenginga. Húsin eru í svokölluðum "DIY " (gerðu það sjálfur) flokki. Húsin eru sérframleidd hjá framleiðanda og afgreiðslufrestur er þar af leiðandi meiri en á lager húsum. Húsin koma með 4mm einföldu hertu gleri en fást einnig með 10 mm ylplasti í stað herta glersins. Arcadia Victorian eru fáanleg í svörtu og grænu.
*** ATH húsin eru sér innflutt eftir pöntunum ***
Modern gróðurhúsin eru stílhrein og falleg gróðurhús. Húsin koma með 4mm einföldu hertu gleri og í svörtum lit. Modern húsin eru með einhalla þaki og því einstök í útliti. Húsin eru búin styrktarbita og henta því vel við íslenskar aðstæður.
*** ATH húsin eru sér innflutt eftir pöntunum ***
GIGANTStóra og sterka glerhúsið Ertu að leita að glerskála fyrir garðinn eða veröndina, þar sem þú getur notið útiveru allan ársins hring með fjölskyldu og vinum? Eða langar þig í gróðurhús sem býður upp á möguleikann á að byrja fyrr á ræktun grænmetis og þannig að uppskera fyrr á árinu? Með glerhúsinu GIGANT færðu gróðurhús með sterkum prófílum, en húsin er hægt er að panta í fjölmörgum stærðum, mismunandi vegghæðum til að falla fullkomlega að garðinum þínum.Möguleikarnir eru fjölmargir, og það er næstum bara hugmyndaflugið sem setur mörkin. Húsin koma með 4mm einföldu hertu öryggisgleri. Húsin fást svört eða græn á lit eða í þeim RAL lit sem óskað er eftir. Gigant húsin eru styrkt enn frekar með sérstökum gitter sperrum úr sterkum álprófílum.

Junior T gróðurhús er fallegt T laga gróðurhús sem er einfalt í uppsetningu. Húsin eru í svokölluðum "DIY " (gerðu það sjálfur) flokki. Húsin eru lager vara hjá framleiðanda og eru því fáanleg með skömmum fyrirvara. Húsin koma með 4mm einföldu hertu gleri og með innbrenndu lakki í svörtum lit.
*** ATH húsin eru sér innflutt eftir pöntunum ***
Erum að breyta í sýningarsalnum. Því er eitt Aladdin krakkahús í garðinn. 180x120 cm, hæð 168 cm. Innifalið í verði er þakefni gólf og festingar. Veggir koma í samsettum einingum.
Er samsett í sýningarsal okkar í Sundaborg. Fæst á tilboði gegn því að vera sótt. Þar að taka í sundur.
Aladdin teikning